Gervigreind getur hjálpað okkur að skilja gögn án þess að fá aðgang að frumgögnunum. Í öðrum verkefnum getur verið skynsamlegra að láta hana vinna með viðkvæmt efni svo færri einstaklingar þurfi að skoða það.
Báðar leiðir geta verið réttar. Það fer eftir verkefninu, upplýsingunum og því hvernig vinnunni er hagað.
Hjá HUX byrjum við á að skilja hvað verkefnið á að leysa og hvaða upplýsingar þarf til þess. Við mótum vinnulagið með viðskiptavininum út frá tilgangi, heimildum og kröfum sem gilda. Við leggjum til útfærsluna, prófum aðferðirnar og bendum á afleiðingar sem þarf að taka afstöðu til.
Gervigreind og sérfræðingar þurfa ekki sömu upplýsingar
Þegar tölur í tveimur rekstrarskýrslum stemma ekki getur gervigreind aðstoðað við að finna skýringuna. Hún getur lagt til tilgátur, skrifað gagnagrunnsfyrirspurnir og hannað prófanir án þess að tengjast gagnagrunninum.
Sérfræðingur HUX eða viðskiptavinarins, með viðeigandi heimildir, framkvæmir rannsóknina í umhverfi viðskiptavinarins. Hann skoðar niðurstöðurnar og metur hvaða upplýsingar má nota í næstu greiningarlotu. Gervigreindin fær þá yfirfarnar forsendur og niðurstöður í stað beins aðgangs að frumgögnunum.
Aðgreining vinnsluumhverfa takmarkar tæknilegan aðgang. Upplýsingar sem sérfræðingurinn miðlar áfram fara hins vegar í gegnum faglegt mat og yfirferð. Þar þarf líka að huga að fyrirmælum, lýsingum á frávikum og samantektum. Slíkt efni getur verið viðkvæmt þótt engar frumfærslur fylgi.
Sömu mörk eiga við þegar hugbúnaður safnar upplýsingum sjálfvirkt úr kerfum. Það sem er sótt við frumvinnslu þarf ekki allt að fara áfram í greiningarþjónustu eða sameiginlegt þekkingarsafn sem fleiri hafa aðgang að.
Stundum er betra að láta tölvuna sjá gögnin
Við yfirferð stórs safns viðkvæmra skjala getur hugbúnaður flokkað efni og dregið fram það sem þarfnast mannlegrar athygli.
Stundum nægir hefðbundinn hugbúnaður. Í öðrum tilvikum getur gervigreind túlkað ólíkt orðalag og samhengi sem erfitt væri að ná utan um með föstum reglum.
Þetta getur dregið úr þörfinni fyrir að fólk lesi öll frumgögnin. Það getur verið mikilvægt þegar efnið inniheldur persónuleg trúnaðarmál eða frásagnir sem eru íþyngjandi fyrir fólk að lesa.
Manneskja getur ekki einfaldlega ákveðið að gleyma því sem hún hefur lesið. Tölvuvinnslu er hins vegar hægt að haga þannig að viðkvæmt inntak sé ekki varðveitt umfram þarfir vinnslunnar.
Þarna þarf að hanna bæði aðganginn og áreiðanleikann. Ef sérfræðingur sér aðeins það sem kerfið velur að sýna honum getur hann ekki sjálfur komið auga á það sem kerfið missti af. Það þarf því að prófa hversu vel sjálfvirka yfirferðin finnur það sem hún á að finna, ekki aðeins hvort niðurstöðurnar sem hún skilar líti rétt út.
Niðurstöður þurfa að standast skoðun
Gervigreind getur sett fram trúverðugar skýringar sem reynast rangar. Við þurfum því að greina á milli tilgátu, niðurstöðu útreiknings og þess sem hefur verið sannreynt.
Í greiningarvinnu berum við saman aðferðir, prófum tilgátur og rannsökum frávik. Þegar niðurstöður passa ekki leitum við skýringar í stað þess að velja þá sem hljómar best.
Það að fyrirspurn endurgeri áður birta tölu sýnir að hægt er að endurgera niðurstöðuna. Það sannar ekki eitt og sér að talningarreglan eða túlkun hennar sé rétt.
Gervigreind gerir okkur kleift að prófa fleiri hugmyndir og vinna hraðar. Ávinningurinn verður mestur þegar sá hraði fer saman við vandaða sannprófun.
Upplýsingar geta afhjúpað meira en stendur í þeim
Það er ekki nóg að skoða hvort gögn innihaldi nöfn, kennitölur eða önnur bein auðkenni.
Samanteknar tölur geta verið persónugreinanlegar þegar hópar eru litlir eða hægt er að tengja niðurstöðurnar við aðrar upplýsingar. Samanburður milli tímabila eða samsetning nokkurra niðurstaðna getur leitt í ljós atriði sem sjást ekki í hverri tölu fyrir sig.
Sama á við um trúnaðarupplýsingar fyrirtækja. Samantekt getur afhjúpað einstök viðskipti, viðskiptasambönd eða rekstraraðstæður án þess að nefna nokkurn aðila.
Við metum því bæði innihald upplýsinganna og hvað hægt er að álykta af þeim. Tilgangur og viðtakandi skipta máli. Upplýsingar sem sérfræðingur hefur heimild til að vinna með innan tiltekins verkefnis eru ekki sjálfkrafa heimilar til miðlunar, vistunar í sameiginlegu þekkingarsafni eða opinberrar birtingar.
Hvað varðveitist þegar vinnslunni lýkur?
Við þurfum að greina á milli þess sem er notað við vinnsluna, þess sem verður að niðurstöðu og þess sem er varðveitt.
Upplýsingar geta geymst í samtölum, tímabundnum skrám, annálum og afritum. Jafnvel skráning á því hvaða aðgerðir voru framkvæmdar getur innihaldið viðkvæmar upplýsingar.
Þegar gervigreind kemur að vinnunni þarf líka að vita hvar líkanið keyrir, hvort þjónustan er rekin í umhverfi viðskiptavinarins eða hjá öðrum þjónustuveitanda, hvernig upplýsingarnar eru meðhöndlaðar og hvort þær séu notaðar við þjálfun líkana.
Við getum hannað vinnslu þannig að viðkvæmt inntak og milliniðurstöður séu ekki varðveitt lengur en þörf er á, en nauðsynlegar niðurstöður og viðeigandi rekjanleiki haldist. Það þarf að sannreyna hvernig þetta virkar í allri vinnslukeðjunni.
Ábyrgðin fylgir verkefninu
Gervigreind breytir því hvað við getum gert og hvernig við vinnum. Hún kallar líka á að við þekkjum nýjar tegundir villna og kunnum að meta niðurstöður sem verða til með öðrum hætti en áður.
Aðgangur að gögnum veitir ekki sjálfkrafa heimild til að rannsaka hvað sem er eða miðla niðurstöðunum áfram. Heimildirnar og ábyrgðin þurfa að vera skýrar, hvort sem sérfræðingur framkvæmir rannsóknina sjálfur, notar hefðbundinn hugbúnað eða fær aðstoð gervigreindar.
Stundum á sérfræðingurinn að sjá frumgögnin en gervigreindin ekki. Í öðrum verkefnum getur stýrð sjálfvirk vinnsla takmarkað þörfina fyrir mannlega yfirferð. Og stundum er eðlilegt að bæði fólk og gervigreind vinni með sömu upplýsingar innan skilgreindra heimilda.
Við viljum geta spurt erfiðra spurninga, sannreynt svörin og nýtt niðurstöðurnar. Með því að skipuleggja upplýsingaflæðið vel getum við gert það án þess að allir þurfi aðgang að öllu.