Við
elskum breytingarskeið
Atvinnulífið er í þvingaðri umbreytingu. Fyrirtæki ráða ekki hvort, bara hvernig þau bregðast við.
Sérfræðingar með reynslu
Að baki HUX stendur teymi sérfræðinga sem hefur í áratugi unnið með fyrirtækjum og stofnunum þar sem kröfur um rekstur og eftirlit eru strangar. Við vitum hvað þarf til að halda flóknum ferlum gangandi þegar mest reynir á. Þar þarf skipulag og stjórnkerfi sem virka, gögn sem hægt er að treysta, kerfi sem tala saman og ferla sem standast skoðun.
Hvað við vinnum með
Við hjálpum fyrirtækjum að tengja saman vinnu, gögn og kerfi. Stundum byrjar það sem AI-verkefni. Stundum sem samþætting, sjálfvirknivæðing eða tæknileg stefna. Oft er raunverulega verkefnið að skapa skýrari leið frá ákvörðun til notkunar.
Við stofnuðum HUX í október 2025 til þess að færa þessa reynslu yfir í hagnýta notkun gervigreindar. Tæknin sparar tíma og handavinnu en breytir ekki grundvallaratriðunum. Lausnir verða áfram að standast strangar kröfur um rekstrarhæfni og öryggi. Þess vegna byggjum við gervigreindarlausnir ofan á skýrt eignarhald og virk rekstrarmódel. Þær eiga heima í daglegum rekstri, aldrei sem einangruð verkfæri utan við hann.
Teymið okkar
Guðjón Örn Þorsteinsson
Þórmundur Helgason
Oddgeir Harðarson
Ólafur Einar Þorbergsson
Nýi AI Agentinn þekkir hvern krók og kima í gagnaumhverfinu okkar. Það er ótrúlega jákvætt hvað við náðum hratt árangri í að tryggja miðlæga, aðgengilega og stöðugt uppfærða skjölun þekkingar með AI og draga þannig úr því að við séum háð þekkingu einstaklinga.